Glasgow - Scotland with Style
Home » SeeGlasgow » Languages » Icelandic » Charles Rennie Mackintosh

Charles Rennie Mackintosh

Charles Rennie Mackintosh (1868-1928) var frægur húsameistari, hönnuður og listamaður, sem fæddist í Glasgow. Hann er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir nýjungagjarnan og áhrifaríkan stíl, sem stuðlaði að mótun nýlistar í Evrópu.

Mackintosh setti mikilfenglegt mark sitt á þrjár gerðir húsa – opinberar byggingar, einbýlishús og testofur – en meirihluti þeirra er staðsettur innan borgarmarka Glasgow. Hann skapaði einnig einstakar húsgagnahannanir, sem sumar eru til sýnis m.a. í Mackintosh House, Hunterian listasafninu eða í listaskóla Glasgow, sem var byggður um þarsíðustu aldamót, en er enn í dag skóli í fullri starfsemi. Mackintosh, kona hans Margaret Macdonald Mackintosh, systir hennar Frances og Herbert McNair – sem saman kölluðust draugaskólinn ("Spook School") – lögðu saman grundvöllinn að Glasgowstílnum. Þessi hópur var hafður í hávegum gagnrýnenda aðallega á meginlandinu og hélt alþjóðasýningar víða á fyrri hluta 20. aldar.

Heimsækið "The Lighthouse" til að fá innsýn í framlag Mackintosh á sviði húsagerðarlistar, en þar er Mackintosh Interpretation Centre, eða farið í einhverja þeirra fjölda ferða, sem skipulagðar eru af Charles Rennie Mackintosh Society.

Einnig skapaði hann einstæðar húsgagnahannanir og sumar þeirra má sjá á eftirtöldum stöðum.

House for an Art Lover
Hunterian Art Gallery
Martyr's School
Queens Cross Church
Scotland Street School Museum
The Glasgow School of Art
The Hill House
The Lighthouse - Miðstöð Skotlands fyrir húsagerðarlist, hönnun og borgina
The Mackintosh House
The Willow Tea Rooms
 
 
Til að fá frekari upplýsingar góðfúslega hafi samband við: Charles Rennie Mackintosh
Society, Queens Cross Church, 870 Garscube Road, Glasgow G20 7EL.
Sími: +44 (0)141 946 6600; Fax: +44 (0)141 945 2321 eða með tölvupósti: info@crmsociety.com.