Glasgow - Scotland with Style
Home » SeeGlasgow » Languages » Icelandic » Menningabort

Menningabort

Áfangastaður
Greater Glasgow og Clyde Valley er einn af mest spennandi áfangastöðum Evrópu, en þar fer saman orka og fágun heimsborgar og eitthvert magnaðasta landslag Skotlands.

Spennandi byggingar
Húsagerðarlist Glasgow er mjög spennandi. Rauður og hunangslitaður sandsteinn Viktoríutímabilsins, ítalskir turnar og miðaldaspírur mynda samsteypta heild með nýgotneskum turnum, nýlist Charles Rennie Mackintosh og títaníum, gleri og stáli nútímaborgar.
 
Áhugaverð list
Í Glasgow eru rúmlega tuttugu þjóðminja- og listasöfn og víða er aðgangur ókeypis. Meðal safna er hið einstæða Burrell Collection, hið töfrandi Mackintosh House og nútímalistasafnið Gallery of Modern Art.

Áhugamenn um frábæra nútímahönnun ættu að leggja leið sína í The Lighthouse, meðan hin framtíðarlega Glasgow Science Centre með IMAX, Science Mall, Glasgow Tower, Planetarium og Virtual Science Theatre mun höfða til allra, sem hafa áhuga á að læra um tækni og notkun hennar í skemmtilegu og áhugaverðu umhverfi.

Þeir, sem leita arfleifða munu njóta þess að heimsækja Museum of Transport, Museum of Scottish Country Life í Kittochside og Clydebuilt, sem segir sögu Glasgow og Clyde fljótsins allt frá tóbaki til skipasmíði. En þeir sem unna knattspyrnu ættu að leggja leið sína til Scottish Football Museum í Hampden.
 
Mikilsverð upplifun
Hvort sem þú ert kúbbamaður, tónlistarunnandi, óperusækjandi, leikhúsgestur eða dansfíkill er jafnan mikilsverð upplifun að heimsækja Greater Glasgow og Clyde Valley. Þú getur sótt sýningar, hátíðir og skemmtanir 52 vikur á ári.

Sýningar Scottish Opera, RSNO Summer Proms og West End Festival, svo og mjúkir hljómar Glasgow International Jazz Festival, glæsilegar Hogmanay Celebrations og Celtic Connections eru einungis hluti þess, sem árlega er í boði og styrkir orðstýr Glasgow sem eina af leiðandi menningarborgum Evrópu.

Í skemmtigörðum svæðisins, kaupstöðum og þorpum fara fram atriði eins og hin litríka World Pipe Band Championships á Glasgow Green, hinar fornu Lanimer Day hátíðir í Lanark og The Shot in Paisley, sem skemmtilegt er að sækja. Nátthrafnar geta hins vegar skemmt sér fram undir morgun á fjölda kúbba, sem bjóða upp á alla tónlistarflóruna.
 
Verslun til heilsubótar
Að versla í Glasgow er algjör unun. Verslunarflóran er fyrsta flokks og þéttur miðbærinn og gatnakerfið gera það að verkum að auðvelt er komast um þegar farið er í verslunarleiðangra. Verslunarmiðstöðvar eins og hin nýtískulegu Buchanan Galleries og St Enoch Centre eru í stuttu göngufæri frá Italian Centre og Princes Square, svo og sérverslanirnar í Merchant City.

Þröng stræti og sund frjálslegs Vesturbæjarins (West-End) eru fjársjóður fyrir þá, sem leita að gömlum munum og fágætum bókum, meðan hægt er að finna nútímalist nýrra listamanna í listasöfnum West Regent Street.

Það er einnig þess virði að gefa sér tíma til að skoða fornmunaverslanir, handverksstofur og garðverslanir í markaðsbæjur og þorpum, sem leynast á svæðinu.
 
Fyrir bragðlaukana
Í Glasgow er bókstaflega hægt að njóta matargerðarlistar hvaðanæva úr heiminum þar sem veitingahúsamenningin nær til alls þess nýjasta úr víðri veröld, allt frá sushi-börum í Merchant City til veitinga- og steikhúsanna í West-End. Þú getur því valið úr hefðbundnum máltíðum, þjóðlegum réttum eða því nýjasta frá Kyrrahafinu. Alltaf er hægt að finna eitthvað bragðgott í Greater Glasgow og Clyde Valley.
 
Hingað og þangað
Rétt fyrir utan Glasgow er að finna einhverjar fegursta sveitir Skotlands. Svæðið er sögulegt og arfleifð mikil og sérhver kaupstaður og þorp með allri sinni fegurð hefur sína áhugaverðu sögu að segja.

Stutt er að aka suður fyrir borgina á ferðamannaslóðir Clyde dalsins, sem liggur upp með fljótinu og New Lanark.

Í vestri er Renfrew-skíri og bærinn Paisley en þar er miðaldakirkja, þjóðminja- og listasafn. Þar má sjá stærsta safn hinna frægu "Paisley Pattern" sjala.

Strandbæirnir í Inverclyde bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir ósa Clyde fljótsins að Argyll hæðunum, en í Mugdock garðinum í Milngavie norður af Glasgow er West Highland Way gönguleiðin.