Glasgow - Scotland with Style
Home » SeeGlasgow » Languages » Icelandic » Samgöngur  » Ferjur

Ferjur

Ferðalög með ferjum eru streitulaus valkostur fyrir ferðamenn, sem vilja njóta hvers augnabliks ferðarinnar – auk aukinna þæginda við að geta tekið eigin bifreið með.

Hægt er að komast til Greater Glasgow og Clyde Valley eftir fjölda ferjuleiða yfir Írlandshaf, Norðursjó eða Ermasund. Við komuna til Bretlands munu ferðalangar geta valið um þægilegar leiðir til svæðisins með járnbrautum eða bifreiðum.

Á Greater Glasgow og Clyde Valley svæðinu starfrækir Caledonian MacBrayne 28 ferjur milli eyjanna við Atlantshafsströnd Skotlands og Western Ferries Clyde Ltd. siglir yfir ósa Clyde milli Dunoon og Gourock.

Góðfúslega smellið á eftirfarandi tengla til að afla upplýsinga og vinsamlegast hafið samband við okkur ef við getum veitt aðstoð varðandi ferðaáætlun ykkar. P&O Ferries, Stena Line og Seacat Scotland sigla daglega yfir Írlandshaf frá Belfast til Stranraer, en þaðan er 90 mínútna ferð til Glasgow.

Scandanavian Seaways annast siglingar milli Kristiansand í Noregi til Newcastle og frá Newcastle til Amsterdam. Nánari upplýsingar um þessa þjónustu er að finna á vefsíðu þeirra.

Caledonian MacBrayne (CalMac) starfrækja 28 ferjur, sem koma við á 23 fögrum eyjum við Atlantshafsströnd Skotlands. CalMac annast einnig siglingar yfir Clyde fjörðinn. Góðfúslega farið á vefsíðu þeirra fyrir viðbótarupplýsingar, netbókanir, svæðakort og tímaáætlanir o.s.frv.

P&O Irish Sea siglir frá Larne (nærri Belfast) á Norður Írlandi til Cairnryan, u.þ.b. 45 mínútna ferð suður af Glasgow. Einnig gerir félagið út fjölda ferja frá Dover og Portsmouth í Englandi til Frakklands og Spánar. Góðfúslega farið á vefsíðu þeirra fyrir nánari ferðaupplýsingar, netbókanir, og tímaáætlanir.

Stena Line, er eitt af stærstu ferjufyrirtækjum í heimi og rekur ferjur milli Belfast á Norður Írlandi og Stranraer í Skotlandi. Félagið gerir einnig út ferjur milli Harwich í Essex (suð- austur Englandi) og Hoek van Holland í Hollandi. Viðbótarupplýsingar, netbókanir, ferða- og tímaáætlanir er að finna á vefsíðu þeirra.

Seacat Scotland gerir út ferjur milli Belfast, Stranraer og Troon (u.þ.b. 48 km. suður af Glasgow). Nánari upplýsingar um farmiða og tímaáætlanir o.s.frv. eru á vefsíðu þeirra eða í síma: 0990 523 523 (innan Bretlands) eða +44 (0)1805 523 523.

Superfast Ferries gera út daglegar siglingar milli Rosyth í Skotlandi og Zeebrugge í Belgíu. Nánari upplýsingar, tímaáætlanir og pantanir er að finna á www.superfast.com eða með því að hringja í síma +44 (0)870 234 0870.

Á svæðinu annast Western Ferries Clyde Ltd. siglingar yfir ósa Clyde fljótsins frá Dunoon til Gourock. Góðfúslega hringið í síma +44 (0)1369 704 452 til að afla nánari upplýsinga um þessa þjónustu.

Upplýsingar um Ermasundsferðir, pantanir og tímaáætlanir o.s.frv. fást hjá:

ferrysavers.co.uk
channelshop.co.uk
hoverspeed.co.uk