Alþjóðaflugvöllurinn í Glasgow er fjölfarnasti flugvöllurinn í Skotlandi, en um hann fara yfir sex milljón farþegar á ári með beinum flugferðum til New York, Chicago og Toronto og 45 daglegum flugferðum til London flugvallanna Heathrow og Gatwick, en þaðan er aftur beint flug til 200 borga um allan heim. Flugvöllurinn er í aðeins 13 kílómetra fjarlægð vestur af miðborg Glasgow, en til hans ásamt Edinborgarflugvelli (í innan við klukkustundar fjarlægð) eru beinar flugferðir frá 19 borgum í Evrópu, þ.á.m. frá lykilstöðum eins og Amsterdam, Brussel, Kaupmannahöfn, Frankfurt og París. <
Glasgow Prestwick alþjóðaflugvöllurinn er staðsettur 48 kílómetra suður af Glasgow og þangað er flogið frá London Stansted, Dublin, Belfast, Donegal og Paris Beauvais.
Meðal flugfélaga, sem þjónusta svæðið, eru:
Aer Lingus Air Canada Air France Air Malta Air Scotland American Airlines BMIBaby British Airways Emirates flybe British Midland Continental Airlines Easyjet Globespan KLM Icelandair Manx Airlines RyanAir Scot Airways US Airways